Vel heppnaður ungliðafundur SGS

VSFS - Logo
Aðalfundur 2017
29/05/2017
Formannafundur SGS ályktar um húsnæðismál
01/06/2017
Sýna allt

Vel heppnaður ungliðafundur SGS

Starfgreinasamband Íslands stóð fyrir fundi fyrir ungt fólk. á Hótel Laugarbakka í Miðfirði dagana 29. og 30. maí. Alls mættu 18 ungliðar á aldrinum 18 til 33 ára til fundarins, en öll eru þau félagsmenn aðildarfélaga SGS.

Dagskráin var fjölbreytt og umræður líflegar. Farið var yfir hvernig starfið í hreyfingunni fer fram, Ásbjörg Kristinsdóttir frá Landsvirkjun ræddi um verkefnastjórnun og mikilvægi þess skipuleggja verkefni sín vel og Stefán Pálsson fór yfir hvernig best væri á kosið að haga sér á fundum og fá sínu framgengt þar. Í lok fundarins hittu ungliðarnir formenn aðildarfélaga SGS og ræddu um væntingar sínar og þau mál sem þeim fannst að berjast ætti fyrir. Kjarasamningar og húsnæðismál voru þar efst á baugi.

Þetta var í annað sinn sem SGS stendur fyrir ungliðafundi á borð við þennan og miðað við ánægjuna og áhugann hingað til er ljóst að þessir fundir eru komnir til að vera. Það er vonandi flestir í þessum hópi eftir að láta af sér kveða innan verkalýðshreyfingarinnar í framtíðinni enda ungt fólk á uppleið með góðar hugmyndir.

Fulltrúi Verkalýðs og sjómannafélags Sandgerðis var: Agnes Valgeirsdóttir.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá fundinum.