Á 6. þingi Starfsgreinasambands Íslands sem haldið var 11. og 12. október á Hótel Selfossi voru samþykktar nokkrar ályktanir en 135 fulltrúar þeirra 19 aðildarfélaga sem eiga aðild að SGS sátu fundinn. Unnið var í nokkrum nefndum inni á þinginu en málefnanefndirnar voru tvær: Kjara- og atvinnumálanefnd og Húsnæðis- og velferðarnefnd. Samþykkt var fjárhagsáætlun fyrir næstu tvö árin og sömuleiðis starfsáætlun en í ljósi góðrar stöðu sambandsins var skatthlutfall aðildarfélaganna lækkað. Þá var sérstaklega fjallað um reglur varðandi félagsaðild og hugsanlega samræmingu reglna á milli sjúkrasjóða.
Þingið samþykkti svohljóðandi málefnaályktanir:
Ályktun um húsnæðis- og velferðarmál
Ályktun um fjölskylduvænna samfélag