Ályktanir samþykktar á 4. þingi SGS

4. þing Starfsgreinasambands Íslands
15/10/2013
Fræðslustefna og starfsáætlun SGS
21/10/2013
Sýna allt

Ályktanir samþykktar á 4. þingi SGS

4. þingi Starfsgreinasambands Íslands sem fram fór í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri  lauk á föstudaginn síðasta.
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, var endurkjörinn formaður sambandsins og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður ALFs starfsgreinafélags, endurkjörinn varaformaður SGS.
Magnús S. Magnússon formaður Verkalýðs og sjómannafélags Sandgerðis var kjörinn í varastjórn og til vara sem félagslegur skoðunarmaður reikninga.


Samþykktar voru fjórar ályktanir; um kjaramál, atvinnumál, húsnæðismál og ríkisfjármál.




Ályktun um atvinnumál


4. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Hofi á Akureyri dagana 16.-18. október 2013, minnir á þau grundvallarmannréttindi að hafa aðgang að vinnu. Þó vissulega hafi náðst ákveðinn árangur í baráttunni við atvinnuleysið þá eigum við enn langt í land að ná viðunandi stöðu í atvinnumálum. Atvinnuleysi er mikið og vinna verður af hörku gegn því. Hafa verður í huga að bak við opinberar atvinnuleysistölur er falið atvinnuleysi. Launafólk hefur sótt vinnu erlendis, fallið út af vinnumarkaði, tæmt bótarétt sinn, sótt nám og tekið þátt í vinnumarkaðsaðgerðum. Það er sameiginlegt verkefni að vinna gegn atvinnuleysi með fjölbreyttum vinnumarkaðsúrræðum og fjölgun starfa.


Þing Starfsgreinasambandsins leggur jafnframt áherslu á að ný fyrirtæki, hvort sem þau eru smá eða stór, byggi upp sína atvinnustarfsemi í góðri sátt við stéttarfélög launafólks og innan þeirra reglna sem vinnumarkaðurinn hefur sett sér. Það er með öllu óþolandi að í ákveðnum atvinnugreinum þrífist svört atvinnustarfsemi og gerviverktaka í stórum stíl. Slíkt er ólíðandi og á ábyrgð okkar allra að vinna gegn. Það er vaxandi áhyggjuefni að hér á landi fjölgi þeim sem vinna svart. Þetta fólk er algjörlega réttindalaust sem er óásættanlegt. Nauðsynlegt er að halda áfram og efla samstarf verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og ríkisskattstjóra. Þing SGS leggur áherslu á að yfirvöld fái auknar heimildir til að beita hörðum viðurlögum gegn svartri atvinnustarfsemi.



 Ályktun um húsnæðismál


 


“Húsnæði – mannréttindi ekki forréttindi”


 


4. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Hofi á Akureyri dagana 16. – 18. október 2013, lýsir yfir þungum áhyggjum af slæmu ástandi húsnæðismála á Íslandi. Sífellt verður erfiðara fyrir fólk að kaupa eða leigja húsnæði og eiga fjölmargir erfitt með að standa undir hækkandi afborgunum lána eða húsaleigu. Stjórnvöld verða að koma til móts við kaupendur meðal annars í formi skattaívilnunar sem tryggir hraðari eignamyndun og huga að þeim sem misst hafa sína fasteign vegna þess að forsendur brugðust við hrun bankanna. Jafnframt leggur þingið áherslu á að húsaleigubætur verði hækkaðar og skerðingarmörkin endurskoðuð.


 


Þing Starfsgreinasambandsins hvetur stjórnvöld í samstarf við banka og aðrar lánastofnanir til að veita ungu fólki sérstakan stuðning til dæmis í formi sparnaðarreiknings sem myndi njóta góðra vaxtakjara og hagstæðrar skattalegrar meðferðar við fyrstu kaup á fasteign. Unga fólkið verður einfaldlega að fá tækifæri til að stíga sín fyrstu skref inn á fasteignamarkaðinn.


 


Þing Starfsgreinasambandsins leggur áherslu á að hér verði byggt upp húsnæðiskerfi á félagslegum grunni til að tryggja öllum viðunandi húsnæði og bendir í því sambandi á tillögur ASÍ í húsnæðismálum.


 


Þing Starfsgreinasambandsins krefst þess að ríkisstjórnin ásamt sveitarstjórnum hefji tafarlaust samstarf með aðilum vinnumarkaðarins til að leysa þann húsnæðisvanda sem þjóðin glímir við í dag.


 



Ályktun um kjaramál


4. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Hofi á Akureyri dagana 16.-18. október 2013, telur að vegna óvissu í efnahagsmálum á næstu misserum sé ekki ráðlegt að semja til langs tíma. Þingið leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði ríkisstjórnin krafin um efndir á fyrirheitum sem gefin voru í kosningabaráttunni sl. vor og bæta eiga hag heimilanna. Þing Starfsgreinasambandsins fordæmir skattabreytingar sem færa tekjuhæstu hópum samfélagsins umtalsverða skattalækkun á meðan skattbyrði láglaunahópa helst óbreytt og krefst þess að því svigrúmi sem er til skattalækkana verði ráðstafað til þeirra sem minnst hafa milli handanna. Þingið leggur áherslu á kaupmáttaraukningu í komandi kjarasamningum með sérstakri áherslu á hækkun lægstu launa og hækkun persónuafsláttar.


Þær stéttir sem eru á lægstu töxtunum eru oftar en ekki fólk innan okkar raða. Hækkun lægstu launa er áhrifaríkasta tækið til að auka launajafnrétti þó vissulega þurfi meira að koma til. Nauðsynlegt er að meta nám betur til launa. Fjöldi launafólks hefur undanfarin ár aukið við færni sína á vinnumarkaði í gegnum styttri námsbrautir og með styrk frá starfsmenntasjóðum. Aukin menntun og hæfni starfsfólks þarf að endurspeglast í hærri launum.


Þing Starfsgreinasambandsins vill brjóta á bak aftur þá láglaunastefnu sem hefur ríkt hér á landi á undanförnum árum og áratugum. Arðgreiðslur í útflutningsgreinum sýna hversu vel þær eru í stakk búnar til að veita starfsfólki aukna hlutdeild í þeim mikla hagnaði sem þar hefur skapast undanfarin ár. Barist verður af alefli fyrir því að lagfæra kjör verkafólks svo um munar í komandi kjarasamningum!


Greinargerð


Það er mat þings SGS að leiðrétting á launum verkafólks muni skila sér í aukinni einkaneyslu, auknum hagvexti og einnig mun veruleg hækkun lágmarkslauna skila sér í auknum skatttekjum til ríkis og sveitarfélaga. Veruleg hækkun launa verkafólks er lífsnauðsynleg fyrir samfélagið allt!


Vegna óvissu í efnahagsmálum á næstu misserum telur þing Starfsgreinasambandsins ekki ráðlegt að semja til langs tíma en skammtímasamningar hljóta hins vegar að taka mið að því að áfram verði unnið að réttindamálum launafólks á milli samninga með langtímasamninga að leiðarljósi. Með þeim hætti verði lagður grunnur að stöðugleika sem er forsenda fyrir auknum kaupmætti. Sú ábyrgð og agi sem þarf til að halda verðbólgu í skefjum og byggja undir stöðugleika í framtíðinni má ekki eingöngu vera á ábyrgð launafólks heldur verður ríkisvaldið, sveitarfélög og atvinnurekendur að sýna svo ekki verði um villst að þau ætla að axla slíka ábyrgð. Á meðan niðurskurði í velferðarþjónustu er velt yfir á launafólk í formi notendagjalda hljótum við að krefjast hærri launa til að halda kaupmætti.


Þing Starfsgreinasambandsins telur gríðarlega mikilvægt að sátt skapist um að lágmarkslaun og launataxtar verkafólks verði hækkaðir svo um munar. Það hefur lengi legið fyrir að launataxtar verkafólks eru langt fyrir neðan öll opinber framfærsluviðmið, sem gerir það að verkum að nánast útilokað er fyrir verkafólk að framfleyta sér og sínum með mannlegri reisn á þeim lágmarkslaunum sem kjarasamningar kveða á um.



Ályktun um ríkisfjármál


4. þing Starfsgreinasambands Íslands haldið í Hofi á Akureyri 16. – 18. október 2013 krefst þess að skattkerfið verði nýtt til tekjujöfnunar og hagsbóta fyrir þá lægst launuðu í landinu. Það er sanngirniskrafa að fólk með hæstu tekjurnar leggi hlutfallslega meira til samneyslunnar en fólk með lágar tekjur. Því leggur þing SGS áherslu á að viðhalda þrepaskiptu skattkerfi og boðaðar skattalækkanir verði nýttar til að mæta þörfum þeirra sem hafa lægstar tekjur, t.d. með því að hækka persónuafslátt.


Þing SGS krefst þess að breytingar á lífeyri eldri borgara og öryrkja miðist að því að bæta kjör þeirra sem minnst bera úr býtum. Tiltrú fólks á lífeyriskerfinu hefur minnkað vegna víxlverkana og skerðinga á milli almannatryggingakerfisins og lífeyriskerfisins. Það veldur því að fólk sjái sér síður hag í því að greiða í lífeyrissjóði alla starfsævina.


Þing Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeim auknu álögum á sjúklinga sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu. Nú á enn að hækka kostnaðinn sem hlýst af því að veikjast. Lágtekjufólk á Íslandi er þegar farið að neita sér um tannlækna- og læknaþjónustu vegna of hárra gjalda. Eðlilegra er að velferðarþjónustan sé fjármögnuð  með sköttum frekar en með notendagjöldum frá veiku fólki.


Þing Starfsgreinasambandsins fagnar sérstaklega því sem kom fram í  máli félags- og húsnæðismálaráðherra á þinginu að áfram verði tryggt fjármagn í vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnuleitendur. Þær hafa skilað miklum árangri á síðustu árum. Hluti af þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni við atvinnuleysi síðustu ár má þakka ýmsum tilraunaverkefnum á vegum verkalýðshreyfingarinnar. 


Þing Starfsgreinasambandsins fordæmir að stjórnvöld hafi einhliða ákveðið að grípa inn í starfskjör  og kjarasamninga fiskvinnslufólks með því að fella burt greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til fiskvinnslufyrirtækja vegna rekstrarstöðvunar af völdum hráefnisskorts.  Forsenda þess er að 3. málsgrein laga nr. 19/1979 sem heimilar fyrirtækjum að senda fiskvinnslufólk heim í hráefniskorti án launa verði breytt. Starfsgreinasambandið hefur margoft  boðist til að ræða breytingar á þessu fyrirkomulagi til að tryggja að fiskvinnslufólk búi við sama starfsöryggi og annað launafólk.