Atkvæðagreiðsla um kjarasamning

VEL HEPPNAÐIR FRÆÐSLUDAGAR STARFSFÓLKS
12/02/2016
Spánn Altomar III í Los Arenales
Laust á Spáni
22/02/2016
Sýna allt

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning ASÍ við SA hefst á morgun þriðjudag (16. febrúar). kl. 8.00 og lýkur kl. 12.00 á hádegi þann 24. febrúar.

Það eina sem þú þarft að gera til að greiða atkvæði er að ýta á grænu myndina af kjörkassa sem finna má hægra megin á heimsíðunni. Þar þarf að setja inn lykilorð sem fylgja með kynningargögnum um samninginn og atkvæðagreiðsluna sem ASÍ sendir frá sér í dag mánudaginn 15. febrúar.

Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kíkt á skrifstofu félagsins og fengið aðgang að tölvu og aðstoð ef með þarf.

Sýnum samstöðu og greiðum atkvæði!

Upplýsingar um kjarasamninginn