Verkalýðsfélag Suðurlands, Báran stéttarfélag, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Drífandi og Verkalýðsfélag Grindavíkur bjóða félagsmönnum sínum að sækja Dale Carnegie námskeið á einstökum kjörum.
Markmið námskeiðsins eru:
Hvenær: Námskeiðið er í 8 vikur og hefst miðvikudaginn 14. október og er einu sinni í viku í 3 tíma í senn frá kl. 18-21.
Hvar: Námskeiðið fer fram í gegnum Webex þjálfunarumhverfi á netinu. Tveir þjálfarar halda námskeiðið og er annar þeirra tæknilegur aðstoðarmaður sem hjálpar þér að tengjast í hljóð og mynd.
Verð: Félagsmenn greiða aðeins kr. 13.500 en fullt verð er 169.000 og er námskeiðsgjaldið niðurgreitt af starfsmenntasjóði. ( Þeir sem skrá sig geta ekki fengið gjaldið endurgreitt nema hætt sé við með a.m.k tveggja vikna fyrirvara)
Skráning á námskeiðið fer fram hér eða í síma 555 7080. Þeir sem þess óska geta skrá sig á Live Online kynningarfund hér.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, [email protected], s. 698-4130