DESEMBERUPPBÓT 2016

30. þing Sjómannasambands Íslands
24/11/2016
Niðurstaða atkvæðagreiðslu sjómanna.
14/12/2016
Sýna allt

DESEMBERUPPBÓT 2016

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2016:

  • Full desemberuppbót árið 2016 er kr. 82.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
  • Full desemberuppbót árið 2016 er kr. 82.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki.
  • Full desemberuppbót árið 2016 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 106.250.

Nánari upplýsingar um rétt til desemberuppbótar skv. þeim kjarasamningum sem heyra undir SGS:

Texti úr kjarasamningum (PDF)

Upphæð desemberuppbótar m.v. starfshlutfall og starfstíma – almenni og ríki (PDF)

Upphæð desemberuppbótar m.v. starfshlutfall og starfstíma – sveitarfélög (PDF)