Desemberuppbót 2020

Uppfærðar leiðbeiningar um smitgát um borð í fiskiskipum
30/10/2020
Dale á milli starfa – LIVE ONLINE
12/11/2020
Sýna allt

Desemberuppbót 2020

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Full desemberuppbót árið 2020:
-94.000 kr. hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
-118.750 kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum.

Sjá nánar hér: Desemberuppbót