Desemberuppbót 2021

Frambjóðandi í heimsókn
23/09/2021
Staða launafólks á Íslandi – Könnun
04/12/2021
Sýna allt

Desemberuppbót 2021

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Full desemberuppbót árið 2021:
-96.000 kr. hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
-121.700 kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum.

Sjá nánar hér: https://vsfs.is/desemberuppbot/