Senn líður að því að vinnuveitendur greiði starfsfólki desemberuppbót fyrir árið 2011. Uppbótin á að greiðast eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þeir sem eiga rétt á uppbótinni þurfa að hafa verið í samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Í ár er einnig greitt sérstakt álag á desemberuppbótina, gilda sömu reglur um þessa greiðslu og gilda um greiðslu á desemberuppbót. Þessi álagsgreiðsla nemur kr. 15.000 fyrir árið 2011 og er eingreiðsla sem bætist við kjarasamingsbundna desemberuppbót. Þannig verður desemberuppbót hjá launafólki á almenna vinnumarkaðnum 63.800 fyrir 100% starf.
Desemberuppbót fyrir árið 2011 er eftirfarandi án sérstaks álags fyrir 100% starf.
Almennt verkafólk og Iðnaðarmenn kr. 48.800
Starfsfólk við uppstokkun og beitningu í landi kr. 48.800
Starfsfólk sveitarfélaga kr. 75.500
Að auki skal greiða kr.15.000 sem er sérstakt álag á desemberuppbót fyrir árið 2011.
ATH. sérstaka álagsgreiðslan á desemberuppbót á ekki við um starfsmenn sveitarfélaga. Þeir eiga að fá sérstaka eingreiðslu kr. 25.000 þann 1.febrúar 2012 skv. grein 1.2.2 í kjarasamningi