Erfiðir kjarasamningar framundan

Atvinnuleysi 9% í apríl
14/05/2010
Lausar vikur í Orlofshúsum VSFS
31/05/2010
Sýna allt

Erfiðir kjarasamningar framundan

Það var þungt hljóðið í formönnum aðildarfélaga ASÍ á formannafundi í dag.Það er ljóst að erfiðir kjarasamningar fara í hönd með haustinu þar sem verkalýðshreyfingin mun nýta afl sitt til að sækja kjarabætur. Mikil gagnrýni kom fram á ríkisstjórnina fyrir ýmsar sakir en helst vegna aðgerðarleysis í atvinnumálum. Gengu sumir fundarmanna svo langt að segja ríkisstjórnina komna á endastöð.


Það voru einkum þrjú stef sem einkenndu umræðuna um efnahags- og atvinnumál.Ríkisstjórnin fékk falleinkunn fyrir aðgerðaleysi í baráttunni gegn atvinnuleysi og seinagang við að koma verkefnum í gang sem lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að fjármagna. Þá bar nokkuð á ótta um að ríkisstjórnin myndi ráðast á millitekjuhópinn þegar hún talar hátekjuskatt. Skýrt kom fram í máli verkalýðsforingjanna að svik ríkisstjórnarinnar um hækkun persónuafsláttar nú í vetur eru geymd en ekki gleymd.


Rætt var um kjarasamningana sem framundan eru í haust.Kom fram í máli manna að erfiðar viðræður stæðu fyrir dyrum og mikilvægara en oftast áður að verkalýðshreyfingin standi saman.Sameiginlegur slagkraftur hreyfingarinnar er afl sem gæti þurft að beita í kjarasamningsgerðinni.


Í þriðja lagi var rætt um mikilvægi þess að ná fram jöfnun lífeyrisréttinda á við opinbera starfsmenn.  Brann það mál mjög heitt á mörgum fundarmönnum.