Fastanefnd EFTA-ríkjanna hefur samþykkt undanþágubeiðni Íslands frá reglum Evrópusambandsins um akstur og hvíld atvinnubílstjóra. Þar með er fallist á sérstöðu Íslands í samgöngumálum en vegakerfi landsins og aðstæður atvinnubílstjóra til hvíldar eru mjög frábrugðnar því sem gerist á meginlandi Evrópu auk þess sem íslenskt veðurfar getur sett strik í reikninginn. Reglugerð Evrópusambandsins mun því verða innleidd hér á landi með meiri sveigjanleika en í öðrum ríkjum á hinu Evrópska efnahagssvæði. Með ákvörðuninni hafnaði fastanefndin ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA sem hafði lagst gegn undanþágubeiðnunum.