Fékkst þú launahækkun

Hækkun mótframlags atvinnurekenda í lífeyrissjóð
06/07/2017
VSFS - Logo
Lokað vegna sumarleyfa
24/07/2017
Sýna allt

Fékkst þú launahækkun

Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis vill takk undir með Starfsgreinasambandinu og minna launafólk á að ganga úr skugga um hvort kjarasamningsbundar launahækkanir hafi skilað sér, en þann 1. maí  síðastliðinn hækkuðu laun og launatengdir liðir á almennum vinnumarkaði um 4,5%. Hjá starfsfólki sveitarfélaganna tóku launahækkanir gildi frá 1. júní sl., en þá hækkuðu mánaðarlaun um 2,5% og 1,7% vegna jöfnunar á bilum milli launaflokka í launatöflu. Þá hækkuðu laun hjá starfsfólki ríkisins um 4,5% frá og með 1. júní 2017.

Fólk er hvatt til að yfirfara launaseðla sína vandlega og bregðast við verði það vart við að umræddar launahækkanir hafi ekki skilað sér.

Kauptaxtar fyrir starfsfólk á almennum markaði (PDF)

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk hjá ríkinu (PDF)

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk hjá sveitarfélögum (PDF)