Formannafundur ASÍ haldinn í dag.

Fræðslustefna og starfsáætlun SGS
21/10/2013
Ályktanir frá formannafundi ASÍ
31/10/2013
Sýna allt

Formannafundur ASÍ haldinn í dag.

Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer í Rafiðnaðarskólanum á Stórhöfða í dag. Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á. Seturétt á fundinum hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn deilda innan aðildarfélaga og miðstjórnarmenn.
 
Formannafundur ASÍ 2013
Rafiðnaðarskólanum, Stórhöfða 27 (Grafarvogsmegin)
30. október 2013
 
09:30 Skráning og afhending fundargagna


10:00 Ávarp forseta ASÍ
          Kynning á hagspá hagdeildar ASÍ


10:45 Kjaramálin – staða og horfur
 
12:00 Hádegishlé
 
13:00 Velferðarkerfið á vinnumarkaði:
          Menntun – virkar vinnumarkaðsaðgerðir – starfsendurhæfing
          Framsögur/innlegg:
          Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
          Runólfur Ágústsson, verkefnisstjóri „Liðsstyrks“
          Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, starfsendurhæfingarsjóðs
          Umræður
          Afgreiðsla ályktunar
 
15:30 Önnur mál
          Afgreiðsla ályktana
 
16:00 Áætluð fundarlok