Formannafundur Starfsgreinasambandsins var haldinn í húsakynnum Gamla Kaupfélagsins á Akranesi síðastliðinn föstudag. Fundinn sátu formenn 19 aðildarfélaga sambandsins eða fulltrúar þeirra. Fundurinn hófst á því að formenn gáfu stutta munnlega skýrslu yfir helstu verkefni sem þeirra félög eru að vinna að um þessar mundir. Í kjölfarið voru ýmis mál tekin til umræðu, þ.á.m. ársreikningur SGS og samstarfssjóðs, stefna ASÍ í lífeyrismálum, eftirfylgni með kjarasamningum og verkaskipting innan sambandins. Fundarmenn fengu jafnframt kynningu á stöðu mála varðandi uppmælingar í ræstingu auk þess sem fulltrúi Eflingar mætti á svæðið til að kynna fyrirkomulag notendastýrðar persónulegar þjónustu (NPA) hér á landi.
www.sgs.is