FORMANNAFUNDUR SGS

Fjórða þing ASÍ-UNG
22/09/2016
Atkvæðagreiðsla um verkfall sjómanna.
03/10/2016
Sýna allt

FORMANNAFUNDUR SGS

Miðvikudaginn 28. september, hélt Starfsgreinasambandið formannafund og var hann að þessu sinni haldinn í höfuðstöðvum sambandsins í Reykjavík. Til fundarins voru boðaðir formenn allra aðildarfélaga sambandsins, 19 talsins og var mæting góð.

Á dagskrá fundarins voru eftir mál:

  1. Undirbúningur fyrir þing ASÍ.
  2. Dagskrá vetrarins hjá SGS.
  3. Húsnæðismál – Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ, fór yfir nýsamþykkt frumvörp og aðkomu verkalýðshreyfingarinnar að uppbyggingu leiguhúsnæðis.
  4. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, ræddi lífeyrismál og SALEK samkomulagið.
  5. Önnur mál.