Hvers virði er ferðaþjónustan? Málþing SGS og Matvís.

Seinagangur stjórnvalda ámælisverður – stöðugleikasáttmáli í hættu
14/09/2009
Samningur við stéttarfélög á Suðurnesjum
24/09/2009
Sýna allt

Hvers virði er ferðaþjónustan? Málþing SGS og Matvís.

Starfsgreinasamband Íslands og Matvís, Matvæla og veitingafélag Íslands halda opið málþing á Hótel Ísafirði 24. september 2009 um framtíðarsýn í ferðaþjónustu. Málþingið, sem er haldið í samvinnu við Ferðamálsamtök Vestfjarða og  Markaðsstofu Vestfjarða mun leitast  við að svara spurningum um það hvers virði ferðaþjónustan er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri. Frummælendur koma úr röðum atvinnulífsins, háskólasamfélagsins, launþegahreyfingarinnar og stjórnsýslunnar auk þess sem iðnaðarráðherra mun fytja ávarp. Eftir hverja framsögu verða fyrirspurnir og stuttar umræður. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest stjórnar málþinginu. Dagskrá málþingsins verður þannig:


Staður: Hótel Ísafjörður, fimmtudaginn 24.09.09


Dagskrá:
Kl. 9:30 Málþingið sett, Niels Sigurður Olgeirsson formaður Matvís


Kl. 9:40  Hvers virði er ferðaþjónustan? Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri SAF


Kl. 10:30  Ferðaþjónustan á Vestfjörðum, tækifæri og hindranir. Áslaug Alfreðsdóttir, hótelstjóri og stjórnarmaður í Ferðamálsamtökum Vestfjarða  fjallar um reynslu Vestfirðinga.


Staðreyndir og staða mála ásamt stefnumótunarferli Atvest, MV og FMSV. Jón Páll Hreinsson forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða.


Kl. 11:45 Ferðaþjónustan og störfin. Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri SGS mun fjalla um fjölbreytni starfa og ný tækifæri í félagslegri ferðaþjónustu.


Kl. 12:30 Léttur hádegisverður


Kl. 13:30  Menntun í ferðaþjónustu frá sjónarmiði aðila vinnumarkaðarins. Guðmunda Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fjallar um menntun í ferðaþjónustu og tengsl óformlega skólakerfisins við hið formlega.


Kl. 14:00 Arðsemi, úthald, afköst. Guðrún Helgadóttir, prófessor og deildarstjóri ferðamáladeildar við Háskólann á  Hólum, talar um mikilvægi þess að styrkja grunngerð og innviði ferðaþjónustunnar. 


Kl. 14:40 Hver er framtíðarsýnin og hvernig náum við henni? Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri fjallar um spurninguna.


Kl. 15:30 Umræður


Kl. 16.00 Ávarp iðnaðaráðherra og ráðherra ferðamála, Katrín Júlíusdóttir.


Málþingsslit, Kristjáni Gunnarsson formaður SGS


Kaffi.


Kl. 16.30 Óvissuferð með kvöldverði.


Ekkert þátttökugjald er á málþinginu, en málþingsgestir sem taka þátt í óvissuferð með kvöldverði og gista á Hótel Ísafirði greiða kr. 15.000. Þá er hádeigisverður og gisting einnig innifalinn.