Kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins vísað til ríkissáttasemjara

Atvinnuleysi í desember 2010 var 8 prósent.
17/01/2011
Leiðin til velgengni, ókeypis fjármálanámskeið í boði Fjármálaþjón. og Virkjun mannauðs á Reykjanesi
19/01/2011
Sýna allt

Kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins vísað til ríkissáttasemjara

Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands(SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var í dag,  var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.


Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar verði af ríkissáttasemjara ef það gæti orðið til þess að skila kjarasamningi aðila í höfn frekar fyrr en síðar.