Kjarasamningarnir staðfestir – gilda til janúar 2014

Skýrsla stjórnar og aðrar samþykktir Aðalfundar 2011
20/06/2011
Lausar vikur í orlofshúsum VSFS
29/06/2011
Sýna allt

Kjarasamningarnir staðfestir – gilda til janúar 2014

Yfirlýsing Alþýðusambands Íslands vegna gildistöku kjarasamninga 22.júní 2011


Samninganefnd ASÍ hefur ákveðið að staðfesta gildistöku þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru þann 5.5 2011. Samtök atvinnulífsins hafa í dag einnig staðfest gildistöku samninganna. Samningarnir munu því gilda til 31.1 2014 með umsömdum endurskoðunarákvæðum.


Markmið kjarasamninganna er að leggja grunn að sátt á vinnumarkaði og samstilltu átaki Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins og ríkisvaldsins við endurreisn efnahags- og atvinnulífsins til að um að auka hagvöxt, skapa störf, auka jafnvægi í efnahags- og atvinnulífi milli einstakra greina, tryggja lága verðbólgu og aukinn kaupmátt. Það er sameiginlegt markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að vinna bug á atvinnuleysi og skapa fjölbreytt og vel launuð störf hér á landi. Til þess að ná því markmiði þarf að örva fjárfestingu og skapa hvata til nýsköpunar í atvinnulífi.


Við blasir að fjárfesting hefur verið of lítil á undanförnum árum og aðgerðir til að örva hagvöxt og skapa störf þurfa að beinast að því að auka arðbæra fjárfestingu hér á landi. Á síðasta ári var fjárfesting undir 200 milljörðum króna eða 13% af landsframleiðslu og hefur þetta hlutfall aldrei verið lægra. Það er markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að þetta hlutfall fari stighækkandi og verði ekki lægra en 20% í lok samningstímans en það jafngildir því að fjárfesting verði ekki lægri en 350 ma.kr. á ári.


Það er ljóst að allir þurfa að leggjast á eitt ef þessi metnaðarfullu markmið eiga að nást. Það veldur því áhyggjum að þegar virðist ákveðið bakslag komið í fjárfestingaráformin:


1. Innanríkisráðherra leggst gegn því að mikilvægum samgöngubótum verði flýtt þannig að hægt verði að fara í tug milljarða króna samgöngubætur á SV-landi á komandi misserum og árum.


2. Tafir eru á því að ríkisstjórnin leggi fram efnahagsáætlun til næstu ára og hagsvaxtar- og fjárfestingaráætlun sem ætlað var að leggja grunn að nýrri sókn í atvinnumálum.


3. Óþolandi tafir hafa verið á úrlausnum á skuldavanda heimila og fyrirtækja sem koma í veg fyrir að hægt sé að taka ákvarðanir um fjárfestingar.


4. Atvinnulífið hefur haldið að sér höndunum og nýtir sér ekki tækifæri til fjárfestinga m.a. í byggingariðnaði.


5. Óvissa og hringlandaháttur varðandi kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar hefur dregið úr hvata til fjárfestinga í uppbyggingu og endurnýjun í sjávarútvegi.


Samninganefnd ASÍ leggur mikla áherslu á að þessum hindrunum verði rutt úr vegi og mun beita sér gagnvart stjórnvöldum og atvinnulífi til að áform um fjárfestingar og aukinn hagvöxt nái fram að ganga.


Hér má sjá staðfestingu ASÍ frá 21. júní 2011 um gildistöku kjarasamninganna.


Hér má sjá staðfestingu SA frá 21. júní 2011 um gildistöku kjarasamninganna.