Niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamninga Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og voru samningarnir samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga í viðræðunum og hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu um samningana. Í heildina var kjörsókn rúmlega 25%, já sögðu 79,95% en nei sögðu 18,43%. Auðir seðlar voru 1,62%. Á kjörskrá voru 9.589 manns.
Niðurstöðurnar voru alls staðar afgerandi og teljast samningarnir á hinum almenna vinnumarkaði sem undirritaðir voru 29. maí síðastliðinn því samþykktir hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Einingu Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Samstöðu stéttarfélagi, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Þórshafnar. Niðurstöður atkvæðagreiðslu SGS 22062015