Kvennaverkfall 24.október 2023

Nýr sveitafélagssamningur – KOSNING
14/09/2023
Desemberuppbót 2023
27/11/2023
Sýna allt

Kvennaverkfall 24.október 2023

Boðað er til allsherjar- og heilsdagsverkfalls kvenna þann 24. október nk.; konur og kvár eru hvött til að mæta ekki til vinnu, annast ekki börnin, standa ekki „þriðju vaktina“ og eftirláta körlunum að sinna heimilinu, börnunum, eldra fólkinu og öllu hinu sem þær sinna samhliða sinni launuðu vinnu.

Fyrsta kvennaverkfallið (kvennafrí) árið 1975 var sögulegur viðburður á alheimsvísu enda lögðu 25.000 eða 90% kvenna á Íslandi niður vinnu þann dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið.

ASÍ er á meðal þeirra samtaka sem efna til kvennaverkfalls. Á þeim tæplega 50 árum sem liðin eru frá fyrsta kvennaverkfallinu hefur náðst markverður árangur í jafnréttismálunum þó enn sé langt í land.

• Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf.
• Fólk sem starfar við ræstingar, umönnun og menntun barna og þjónustu við sjúka og aldraða myndar láglaunahópa í samfélaginu.
• Atvinnuþátttaka kynjanna er svipuð — en konur bera langmesta ábyrgð á heimilishaldi og umönnun.

Kvennaverkfallið er þó ekki verkfall eins og vinnulöggjöfin segir til um. Launafólk tekur þátt á eigin forsendum og hvetjum við konur og kvár að fá heimild hjá sínum yfirmanni til að taka þátt og berjast fyrir jafnrétti.

Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis hvetur atvinnurekendur til að heimila starfsfólki sínu að taka þátt án þess að skerða laun.

Útifundir verða haldnir víða um land í tilefni dagsins.

Sameinast verður við Krossmóa 4, kl. 11:30 þar sem verður stutt dagskrá og öll svo hvött til að mæta á útifund á Arnarhóli í Reykjavík kl. 14:00 síðar um daginn. Facebook viðburður

Í Reykjavík verður haldinn fundur á Arnarhóli og hefst hann kl 14:00 Facebook viðburður

Kvennafrí

Kvennaverkfall 2023 

Women’s Strike 2023

Strajk kobiet 2023