Laun eða starfshlutfall hafa verið skert hjá 35% launafólks

Ýmis námskeið á fjarkennsla.com
18/08/2009
Viðmiðunarverð á þorski og karfa hækkar.
08/09/2009
Sýna allt

Laun eða starfshlutfall hafa verið skert hjá 35% launafólks

Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október.  Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í júní. Flestir eða rúmlega 18% hafa lent í launalækkun, hjá 9% hefur vinnutími verið styttur og 8% hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu.  Þetta er mikil aukning frá því í desember 2008 þegar 21% launafólks hafði orðið fyrir í slíkri skerðingu.


Mun fleiri karlar en konur hafa lent í skerðingu launa og/eða starfshlutfalls og þá vekur athygli að 40% iðnaðarmanna hafa orðið fyrir því að laun hafa verið lækkuð eða vinnutími styttur.  Þá hafa þeir sem eru með laun yfir 550 þúsund á mánuði frekar lent í launalækkun en þeir sem hafa lægri laun.  Nákvæmt niðurbrot svara við spurningu um skerðingu launa og starfshlutfalls má sjá hér.



Þegar spurt var í júní hvort fólk teldi sig í öruggri vinnu svöruðu 77% því játandi en 23% töldu líkur á því að viðkomandi gæti orðið atvinnulaus.  Sama spurning var borin upp í könnunum í október og desember 2008.  Í október töldu 69% sig vera í öruggri vinnu en 31% óttuðust atvinnumissi en í desember hafði þeim fjölgað í 76% sem töldu sig í tryggri vinnu en 24% óttuðust að missa hana.  Þróunin er því sú að eftir mikið óvissu ástand sl. haust eru sífellt fleiri sem telja sig í öruggu starfi, þó vissulega sé það alvarlega staða að tæplega fjórði hver launamaður telji raunhæfar líkur á að hann geti misst vinnuna.  Þarna skera iðnaðarmenn sig einnig úr en 40% þeirra sem enn eru í vinnu óttast atvinnumissi. Nánara niðurbrot á svörum má sjá hér.