Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis ásamt þremur öðrum stéttarfélögum, hefur til umráða orlofsíbúð nr. 13 í Altomar III í Los Arenales á Spáni. Vekjum athygli á því að það er laust um Páskana.
Raðhúsahverfið Altomar III í Los Arenales er rétt sunnan við Alicante borg og mjög gott útsýni er til Alicante frá ströndinni í Los Arenales. Akstur frá Alicante flugvelli til hverfisins tekur um 15 mínútur, en um 20 mín akstur er inn í miðborg Alicante frá íbúðinni. Auðvelt er að taka bílaleigubíl frá flugvelli og auðvelt að fylgja leiðbeiningum til áfangastaðar.
Fyrstur kemur fyrstur fær… sjá það sem er laust hér
Um skráningu á umsóknum sér Ólöf í Grundarfirði í síma: 588-1991 frá kl.10.00-15.00 alla virka daga. Netfang: [email protected]
Sjá nánari upplýsingar um staðinn á: https://vsfs.is/orlofshus/