Líflegar umræður á formannafundi ASÍ

Formannafundur á morgun
22/01/2009
Fundur hjá orlofsnefnd
28/01/2009
Sýna allt

Líflegar umræður á formannafundi ASÍ

Eftir hádegið föstudaginn 23. janúar lauk formannafundi Alþýðusambandsins á Grand hótel þar sem rædd var beiðni SA um seinkun á framkvæmd ýmissa ákvæða núgildandi kjarasamnings vegna efnahagsástandsins, m.a. frestun á taxtabreytingum sem eiga að koma til framkvæmda 1. mars fram á sumar.Einnig var rætt að fresta viðræðum um endurskoðun kjarasamninga fram í júní og stjórnmálaástandið almennt. Var ríkisstjórnin gagnrýnd harðlega fyrir að daufheyrst við óskum verkalýðshreyfingarinnar, frá því snemma á síðasta ári, um virkt samráð vegna efnahagsástandsins. Verkalýðshreyfingin krafðist einnig fordómalauss uppgjör á bankahruninu með aðkomu erlendra sérfræðinga, hún krafðist breytinga á ríkisstjórn, yfirstjórn Seðlabanka og Fjármálaeftirlits.Öllu þessu hafnaði ríkisstjórnin.


Umræður urðu líflegar en þó án niðurstöðu enda var þetta umræðufundur en ekki ákvarðanafundur. Inn á fundinn bárust fréttir af væntanlegum kosningum 9. maí sem gerir frestun á endurskoðun brýnni en ella enda nauðsynlegt að fá nýja ríkisstjórn með endurnýjað umboð að því borði.


Ákveðið var að halda annan formannafund um miðjan febrúar.