Öll aðildarfélögin veita umboð

Félagsleg undirboð og brotastarfsemi verði ekki liðin á vinnumarkaði
10/09/2018
Starfsgreinasambandið birtir kröfur sínar
11/10/2018
Sýna allt

Öll aðildarfélögin veita umboð

Öll 19 aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa veitt sambandinu samningsumboð og munu félögin því koma sameinuð að gerð kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, en núgildandi samningar renna út um áramótin. Um er að ræða sögulegan áfanga því þetta er í fyrsta skipti í sögu sambandsins sem öll aðildarfélögin framselja samningsumboðin til SGS vegna kjarasamninga á almennum markaði.

Í föstudaginn sl. lauk góðum tveggja daga vinnufundi á Hótel Selfossi þar sem félögin kynntu áherslur sínar og í framhaldinu voru unnin drög að nýrri að sameiginlegri kröfugerð sem gengið verður frá um miðja viku.