Minnum félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 56.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.
Sveitarfélög
Persónuuppbót er 55.700 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí.