Orlofsuppbót 2015

Starfsgreinasamband Íslands
Starfsgreinasambandið frestar verkföllum og gefur SA tækifæri til lausna
18/05/2015
Lausar vikur í orlofshúsum í sumar
20/05/2015
Sýna allt

Orlofsuppbót 2015

Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis vill minna launafólk á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót. Orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2015 kemur til greiðslu þann 1. júní nk. hjá þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu. Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar en ef ósamið verður þann 1. júní þá kemur sama fjárhæð til greiðslu og á síðasta ári, þ.e. 39.500 kr. Þeir sem starfa hjá sveitarfélögum áttu að fá greidda orlofsuppbót  að upphæð 39.000 kr. þann 1. maí sl. Þessar upphæðir miðast við þá sem eru í 100% starfi.