Ráðgjafi Virk á Suðurnesjum

Félagsfundur í tilefni 80 ára afmælis félagsins.
28/10/2009
Fiskverð í beinum viðskiptum hækkar.
04/11/2009
Sýna allt

Ráðgjafi Virk á Suðurnesjum

Guðni Erlendsson hefur verið ráðinn í stöðu ráðgjafa á Suðurnesjum.  Hann verður með aðsetur í húsakynnum VSFK að Krossmóum 4. Guðni er kennari að mennt og hefur auk þess MS gráðu í mannauðsstjórnun.  Hann hefur víðtæka starfsreynslu m.a. á sviði starfsendurhæfingar.   Guðni mun veita einstaklingum á Suðurnesjum þjónustu á sviði starfsendurhæfingar auk þess að starfa náið með stéttarfélögum starfsmanna og atvinnurekendum á svæðinu.  Guðni hóf störf 1. nóvember sl.