SA skilyrti gerð skammtímasamnings sem lá á borðinu í karphúsinu á föstudagskvöld því að verkalýðshreyfingin færi með SA í stríð við ríkisstjórnina. Það átti að gerast með sameiginlegri yfirlýsingu um að ríkisstjórnin bæri ábyrgð á því að þriggja ára samningur náðist ekki fyrr í dag. ASÍ og aðildarsamtök þess eru ekki tilbúin til þess enda ríkisstjórnin komið verulega til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar á allra síðustu dögum.
Auk þess lætur ASÍ ekki stilla sér upp við vegg. Alþýðusambandið og aðildarsamtök þess eru fullfær um að velja sér sína andstæðinga sjálf. Þá hefur það aldrei staðið til af hálfu ASÍ að ganga til liðs við SA í sjávarútvegsmálunum. Þessi deila um gerð kjarasamninganna snýst ekki lengur um kjör launafólks heldur pólitík. Af þessum sökum yfirgáfu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar karphúsið á tólfta tímanum á föstudagskvöld.
Sjá vefur ASÍ hér