Sveitafélög sýni ábyrgð – Ályktun samninganefndar SGS

Orlofshús um páska – Umsókn
04/02/2019
Starfsgreinasamband Íslands tekur ákvörðun um áframhald kjaraviðræðna
08/03/2019
Sýna allt

Sveitafélög sýni ábyrgð – Ályktun samninganefndar SGS

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands skorar á sveitarfélög landsins að standa undir þeirri ábyrgð sem þau bera vegna kjarasamninga. SGS krefst þess að sveitarfélögin haldi aftur af kostnaðarhækkunum og hækkunum á  margvíslegum þjónustugjöldum og velti ekki auknum kostnaði yfir á almennt launafólk.Sjálfvirkar hækkanir á fasteignagjöldum í fjölmörgum sveitarfélögum eru algerlega óásættanlegar og bitna harðast á þeim sem síst skyldi.

Það þurfa allir í samfélaginu að taka höndum saman um að bæta afkomu þeirra lægst launuðu í samfélaginu og tryggja þeim raunverulegar kjarabætur.