42. þing ASÍ verður sett á Hilton Nordica kl. 10 í dag 26. október. Á þinginu, sem mun standa í þrjá daga, verður málefnavinna unnin í hópum eftir þjóðfundafyrirkomulagi eins og tíðkast hefur á undanförnum þingum Alþýðusambandsins með góðum árangri. Á miðvikudaginn verður rætt um nýtt samningalíkan að Norrænni fyrirmynd og á fimmtudaginn verður fókusinn settur á velferðar- og vinnumarkaðsmál. Á föstudag verður svo kosið í embætti til næstu tveggja ára, þar á meðal forseti ASÍ, varaforsetar og í miðstjórn ASÍ.
Á fimmtudaginn kl. 14 verður efnt til pallborðsumræðna með leiðtogum þeirra sjö stjórnmálaflokka sem líklegastir eru að ná fólki inn á þing eftir kosningarnar um samhengið á milli efnahagslegs- og félagslegs stöðugleika. Þessi umræða og opnun þingsins á miðvikudag verða sýndar í beinni útsendingu hér á heimasíðu ASÍ.
Streymi frá opnun 42. þings ASÍ (kl. 10:00-11:15 á miðvikudag)