Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis hefur sent frá sér tillögu að lista samkvæmt lögum félagsins. Stjórnin leggur fram tillögu að lista til stjórnar og nefnda VSFS. Listi stjórnarinnar liggur frammi til kynningar á skrifstofu félagsins að Miðnestorgi 3 og á heimasíðu félagsins frá og með miðvikudeginum 28. mars 2018.
Á aðalfundi Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis 2018 skal kosið um varaformann, einn meðstjórnanda og tvo varamenn.
Einnig er kosið í nefndir og ráð fyrir starfsárið 2018 – 2019
Frestur til að bjóða sig fram eða bera fram aðrar tillögur til stjórnarinnar er til og með 30. apríl 2018 og þurfa tillögurnar að berast skrifstofunni fyrir þann tíma.
Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis