Starfsgreinasambandið hefur útbúið nýja upplýsingasíðu þar sem finna má hinar ýmsu gagnlegu upplýsingar varðandi nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA). Á síðunni er m.a. að finna öll helstu atriði samningsins, glærukynningu, upplýsingar um atkvæðagreiðslu o.fl. Upplýsingarnar eru einnig aðgengilegar á pólsku og ensku.
Félagsmenn sem starfa skv. umræddum samningi eru hvattir til að að kynna sé samninginn vel og nýta atkvæðisrétt sinn, en atkvæðagreiðsla um samninginn hefst kl. 12:00 þann 9. desember næstkomandi og stendur til hádegis 19. desember.
Fara á upplýsingasíðu SGS um nýjan kjarasamning